ssumar
Written by Helga Drfn Jnsdttir   
Wednesday, 05 August 2009
Þá er verslunarmannahelgin liðin og farið er að rökkva á ný!
Við Íslendingar höfum verið heppin með þetta sumar - enda áttum við það skilið, finnst okkur amk. Jahh við höfum í það minnsta verið heppin hérna á suðvesturtánni. Ekki víst að norðausturhornið sé sammála.
Ágústfríi hefur verið frestað fram í október, svo nægur er tíminn fyrir þá sem vilja. Reyndar fyllist alltaf allt fljótt, en um að gera að hafa samband ef þú heldur að ég geti gert eitthvað fyrir þig. Oft losna tímar með stuttum fyrirvara og breytingar eru sífellt að eiga sér stað.
Ég mæli þó alltaf með því að fólk nýti sér nudd sem forvörn en ekki sem skyndilausn þegar allt er komið í hnút. Hugsum því fram í tímann því það er hollara en að taka á vandamálum sem eru komin - jafnvel til að vera....
Helga Dröfn - Heilsuhvoli - s. 822-0929
 
Sumar 2009
Written by Helga Drfn Jnsdttir   
Wednesday, 17 June 2009
Sumarið er tíminn. Heilsunuddarinn verður í sumarfríi frá 27. júní – 12. júlí. Byrja s.s aftur að nudda á fullu þann 13. júlí. Mun að öllum líkindum einnig taka nokkra daga í ágúst, en sá tími á eftir að skýrast síðar.
Endilega slá á þráðinn fyrr en síðar ef þú vilt komast í nudd fyrir sumarfrí. Nóg hefur verið að gera, fólk að byrja slökun sumarfrísins í nuddi. Það er frábær leið til að byrja sumarfríið og njóta þess í botn.
Minni á að láta tímanlega vita af forföllum. Það er vont þegar fólk bíður á biðlistum og einhver gleymir sér. Þá getur tími farið til spillis fyrir alla.
Eigiði annars gott sumar og munum bara að alltaf er hægt að sníða stakk eftir vexti. Næg eru verkefnin, hvert sem við förum til að njóta sumarsins. Það getur td verið gaman að prufa að vera túristi í Reykjavík – borginni sem við teljum okkur þekkja svo vel!
 
vor
Written by Helga Drfn Jnsdttir   
Thursday, 16 April 2009

Þá eru páskarnir liðnir, farið að vora, sól hækkar á lofti og fólk vonandi að gleðjast samhliða því.

Veturinn hefur verið Íslendingum og sjálfsagt fleirum erfiður og maður finnur að fólk er þreytt. Þreyttara en vanalega á þessum tíma.

Við megum ekki gleyma að hugsa um líkamann okkar og sál. Gönguferðir, sund, fjallgöngur, lengri og styttri ferðalög ofl getum við gert án mikils tilkostnaðar.

Heilsunuddarinn hefur ekk ákveðið sumarfrístíma. Verður að öllum líkindum í kringum verslunarmannahelgi, en það kemur í ljós síðar.

Gleðilegt sumar!

 

Bestu kveðjur,

Helga Dröfn Jónsdóttir
Heilsunuddari, sími 822-0929
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
www.heilsunuddarinn.com

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>

Results 5 - 8 of 26