|
Written by Helga Dröfn Jónsdóttir
|
|
Sunday, 22 August 2010 |
Heilsunuddarinn er nú búinn í sumarfríi og hefur hafið störf aftur á fullu. Allt er að komast í rútínu aftur eftir sumarið. Mig langar að minna á að hafa samband tímanlega og beita heilsunuddi sem forvörn frekar en að hafa samband þegar allt er komið í vitleysu. Þannig er auðveldara að takast á við vandamálið, það þarf færri tíma og kostar þar af leiðandi minna. Margir viðskiptavinir eru komnir með þá reglu að halda sér við með nuddi. Þeir koma reglulega, sem getur verið mismunandi eftir hverjum og einum hversu oft það er. Sumir koma hálfsmánaðarlega, margir mánaðarlega og einstaka á 6 vikna fresti. Og allt þar á milli að sjálfsögðu. Hver og einn ákveður sjálfur hvað hann/hún þarf að koma reglulega, getur verið breytilegt eftir störfum, starfsstellingum, einkennum, álagi heima og í vinnu, ofl ofl ofl. Hver einstaklingur hefur persónulega sögu að segja og þar af leiðandi mismunandi þarfir.
Mig langar einnig að minna fólk á mikilvægi tímans okkar allra. Vinsamlegast láttu vita tímanlega ef þú kemst ekki í nudd, því oft eru einhverjir á biðlista eftir tímum daglega og því slæmt ef einhver tilkynnir ekki fjarveru sína. Þá gefst ekki tími til að hafa samband við þá sem hafa mikla þörf fyrir að nýta tímann og heilsunuddarinn situr með hendur í skauti og hefur fátt fyrir stafni!
Óska ykkur annars gleðilegs hausts. Haustið býður upp á marga skemmtilega og spennandi hluti, hjá þér og hjá mér. Nýjir tímar hefjast oft með nýjum áherslum á þessum árstíma. Hlakka til að sjá þig og heyra frá þér og fylgstu endilega með hvaða nýjungar munu birtast hér þegar líður á veturinn.
Bestu kveðjur,
Helga Dröfn Jónsdóttir Heilsunuddari, sími 822-0929
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
www.heilsunuddarinn.com |
|
|
Written by Helga Dröfn Jónsdóttir
|
|
Wednesday, 07 April 2010 |
|
Þá er fer að styttast í sumarið. Veturinn hefur gengið mjög vel. Alltaf nóg að gera og virðist alltaf sem maður komi í manns stað. Mjög góð nýting á tímum. Þér er velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
eða í síma 822-0929 ef þú vilt fá tíma eða fá svör við einhverjum spurningum. Ég svara hvorutveggja mjög fljótt. Gott er að skilja eftir skilaboð í símanum ef ég svara ekki, því ég tek ekki símann rétt á meðan ég er að nudda. Mundu að nudd er frábær forvörn! Sjáumst. |
|
|
Written by Helga Dröfn Jónsdóttir
|
|
Sunday, 29 November 2009 |
- Langar þig í jólanudd? Nú fer hver að verða síðastur að bóka heilsunudd fyrir jól og/eða milli jóla og nýárs. Minni einnig á heilsunudd í jólagjöf - er með gjafakort í jólagjafir. Heilsunudd hefur verið vinsæl jólagjöf undanfarin ár og sækir sífellt á í hinar ýmsu tækifærisgjafir. Hafðu samband tímanlega. - Úr í óskilamunum. Getur verið að þú hafir gleymt úrinu þínu hjá mér? Hafðu samband. |
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>
|
| Results 1 - 4 of 26 |