|
Written by Helga Dröfn Jónsdóttir
|
|
Wednesday, 17 June 2009 |
Sumarið er tíminn. Heilsunuddarinn verður í sumarfríi frá 27. júní – 12. júlí. Byrja s.s aftur að nudda á fullu þann 13. júlí. Mun að öllum líkindum einnig taka nokkra daga í ágúst, en sá tími á eftir að skýrast síðar. Endilega slá á þráðinn fyrr en síðar ef þú vilt komast í nudd fyrir sumarfrí. Nóg hefur verið að gera, fólk að byrja slökun sumarfrísins í nuddi. Það er frábær leið til að byrja sumarfríið og njóta þess í botn. Minni á að láta tímanlega vita af forföllum. Það er vont þegar fólk bíður á biðlistum og einhver gleymir sér. Þá getur tími farið til spillis fyrir alla. Eigiði annars gott sumar og munum bara að alltaf er hægt að sníða stakk eftir vexti. Næg eru verkefnin, hvert sem við förum til að njóta sumarsins. Það getur td verið gaman að prufa að vera túristi í Reykjavík – borginni sem við teljum okkur þekkja svo vel!
|